WorldFengur fyrir
              Sörlafélaga 

         

 
 


 

17.5.2012 17:02
Frá Ferðanefnd
Helgafellstúrinn í kvöld!
Hinn sívinsæli Helgafellstúr verður á föstudaginn kemur, þann 18.maí nk. Brottför er stundvíslega klukkan 20:00 frá suðurgafli Sörlastaða. Ferðanefndin mun sjá um veitingasölu í túrnum með hefðbundnum hætti, svo menn sleppa við að smyrja nesti en þurfa að taka með sér aur.
Lesa meira..

16.5.2012 11:44
Frá Ferðanefnd
Krýsuvíkurferð um hvítasunnuna
Ferðanefndin ætlar að ríða í Krýsuvík um hvítasunnuna dagana 27.-28. maí. Það þarf að skrá þátttöku í þennan túr. Skráning fer fram á Sörlastöðum hjá Magnúsi í síma 565 2919 eða 897 2919 eða með því að senda póst á sorli@sorli.is.
Lesa meira..

16.5.2012 09:34
Frá Skemmtinefnd
Kvennareið Sörla í kvöld - brottför kl. 18:00 frá Hlíðarþúfum!
Hin árlega Kvennareið Sörla, Andvara, Gusts og Sóta verður miðvikudaginn 16. maí (uppstigningardagur daginn eftir). Við Sörlakonur erum gestgjafarnir í ár.
Lesa meira..

16.5.2012 08:47
Frá LM
Það styttist í Landsmót - starfsfólk óskast
Eins og þið vitið öll þá styttist óðum í Landsmót og því er undirbúningur kominn á fullt. LM leitar nú til félaganna eftir áhugasömu fólki sem við starfa við mótið sem verður í Víðidal.
Lesa meira..

15.5.2012 15:08
Frá Mótanefnd Sörla
Íþróttamót Sörla 2012 - skráningu lýkur á miðnætti í kvöld!
Íþróttamót Sörla verður haldið á Sörlavöllum 19.-20. maí 2012. Skráningu lýkur í kvöld þriðjudaginn 15. maí, á miðnætti. Mótið er opið í Meistaraflokkum, 1 flokki og 100 m skeið. Skráningargjald er 3500 á grein nema börn og unglingar 2500 á grein og skeið 2000 og 1000 krónur fyrir polla.
Lesa meira..

14.5.2012 14:14
Aðsent efni
Sörlafélagar gerðu það gott um helgina!
Um helgina fóru fram fjölmörg íþróttamót. Sörlafólk var að gera frábæra hluti á mótum helgarinnar. Eftirfarandi Sörlafélagar unnu sína flokka um helgina:
Lesa meira..

14.5.2012 09:03
Frá mótanefnd
Farandbikarar óskast í hús!
Við viljum biðja alla þá sem hlutu farandbikara í verðlaun á Íþróttamóti Sörla 2011 um að skila þeim til Magnúsar á Sörlastaði nú í vikunni, í síðasta lagi á föstudaginn.
Lesa meira..

11.5.2012 08:22
Frá Mótanefnd
Íþróttamót Sörla 2012 - skráning
Íþróttamót Sörla verður haldið á Sörlavöllum 19.-20. maí 2012.  Athugið að lokað verður fyrir skráningar á mótið þriðjudaginn 15. maí á miðnætti. Mótið er opið í Meistaraflokkum, 1 flokki og 100 m skeið. Skráningargjald er 3500 á grein nema börn og unglingar 2500 á grein og skeið 2000 og  1000 krónur fyrir polla.
Lesa meira..

9.5.2012 12:07
Frá stjórn
Af gefnu tilefni!
Af gefnu tilefni viljum við benda mönnum á að harðbannað er að dreifa skít á félagssvæði Sörla. Kvartanir hafa borist vegna þess að menn hafa verið að dreifa skít við reiðvegi - ekki síst við efri hluta Sörlaskeiðs.
Lesa meira..

9.5.2012 11:28
Frá Sörlastöðum
Héraðssýning á Sörlastöðum hefst á morgun
Héraðssýning á Sörlastöðum hefst á morgun fimmtudaginn 10. maí kl. 08:00. Að þessu sinni eru aðeins 47 hross skráð til dóms á Héraðssýningunni og lýkur henni því á föstudaginn. Líklega er það tímasetning sýningarinnar sem ræður mestu um dræma þátttöku að þessu sinni. Sörlakaffi verður að sjálfsögðu opið á meðan sýningu stendur. Hér má sjá hollaröðun sýningarinnar.
Lesa meira..

8.5.2012 14:17
Frá Kynbótanefnd
Folatollur til sölu
Kynbótanefnd Sörla auglýsir folatoll undir Mátt frá Leirubakka.
Lesa meira..

7.5.2012 11:52
Frá formanni
Formannspistill
Nú er vorið gengið í garð og dagkrá Sörla þéttskipuð að vanda. Grilltúrinn var farinn um helgina, Kvennareið og Helgafellstúr eru fastir liðir sem fjölmargir sækja ár eftir ár. Með vorinu fjölgar líka mótunum og kíkti ég á Reykjavíkurmeistaramót Fáks, sem endaði í gær, á glæsilegum A- úrslitum.
Lesa meira..